Listasafn
Reykjavíkur
Heimsækja Vef
Viðskiptavinur
Reykjavíkurborg
Tæknistakkur
Strapi CMS, Figma, Next.js, Typescript, Storybook, Framer motion, Tailwind CSS
Heimsækja Vef
Viðskiptavinur
Reykjavíkurborg
Tæknistakkur
Strapi CMS, Figma, Next.js, Typescript, Storybook, Framer motion, Tailwind CSS
Við tókum þátt í stórri hönnunarsamkeppni um vefþróun, vefhönnun og forritun á nýjum vefsvæðum Listasafns Reykjavíkur og Borgarsögusafns Reykjavíkur á vegum Reykjavíkurborgar árið 2022 og sýndum einstaklega metnaðarfulla kynningu á hugmyndum okkar fyrir vefina. Við notuðumst við tónlist í kynningu í fyrsta sinn og það sló auðvitað í gegn. Við unnum útboðið og hófumst handa við að þróa, hanna og forrita nýja vefi fyrir söfnin.
Það var einstakt tækifæri að vinna með þetta vörumerki og okkur þótti mjög gaman að fá að gera ýmis konar tilraunir með uppsetningu, hreyfihönnun og þrívíddarhönnun á vefnum. Úr varð þessi frumlega og framúrstefnulega niðurstaða og við hvetjum ykkur til að heimsækja vefinn til að sjá hvernig allt lítur út.
Einkennandi hönnunarfeature 1
Við tókum merki safnsins og gerðum úr því alvöru þrívíddarútgáfu sem svífur og hverfist um sjálft sig efst á síðunni þegar notandinn skrunar niður. Neðst á síðunni má svo finna einskonar boltaland þar sem er hægt að draga og fleygja merkinu hingað og þangað. Okkur fannst það stórskemmtilegt.
Aðeins um forritun:
Strapi CMS
Þetta vefumsjónarkerfi var valið svo að hægt væri að hýsa allt hjá Reykjavíkurborg og ekki þurfa að notast við önnur cms kerfi erlendis eins og Contentful t.d.
Það gerir manni kleift að nota svipaða virkni eins og helstu headless cms kerfin í dag bjóða upp á en á sama tíma að hýsa allt á einangruðu svæði með sér gagnagrunn svipað eins og er gert með WordPress/Drupal hýsingar.
Next.js
Býður upp á statískar síður sem uppfærast í bakgrunni án þess að trufla eða hægja á upplifun notandans.
Framer motion
Eitt öflugasta tólið til að vinna með þegar þarf að gera alls kyns hreyfingar á síðunni.